Aðkoma og umferð til og frá Hjalla er vöktuð með myndavélum. Tjaldsvæðið vöktum við hjónin í eigin persónu eða aðrir á okkar vegum alla daga ársins, allan sólarhringinn með örfáum, stuttum óreglulegum undantekningum.
Móttakan er gluggi og snjalldyrabjalla. Það er enginn formlegur opnunartími en frá kl 8 að morgni til 22 að kvöldi komum við annað hvort í gluggann ef bjöllunni er hringt eða svörum henni.
Þjónusta á tjaldsvæðum er eins og gefur að skilja nokkuð árstíðabundin eða háð veðri. Við reynum ávallt að veita eftirfarandi fulla þjónustu.
- Afmörkuð svæði á grasi með skjólbeltum.
- Upphituð baðherbergi; vatnssalerni, heit sturta og handlaug.
- Lítil setustofa.
- Einföld eldunar- og uppvöskunaraðstaða í óupphituðu rými.
- Þvottavél og þurrkari.
- Netsamband (í og við þjónustuhúsnæði).
- Vatnsslanga til að fylla á vatnstanka á húsbílum.
- Seirulosunarstútur og vatnsslanga til að skola ferðaklósettkassa.
- Við áskiljum okkur rétt til þess að loka fyrir þjónustu eða takmarka aðgengi á vissum tímum sólarhringsins, vegna þrifa, slæmrar umgengni, ónæðis eða annarra óviðráðanlegra þátta.