Kofinn
Í um 200 m fjarlægð frá þjónustuhúsnæðinu höfum við sett niður einn 9 fermetra bjálkakofa. Í kofanum er rafmagn og hitari og í honum er koja sem ætti vel að geta rúmað þrjá (neðri kojan er breiðari).
Við þjónustuhúsnæðið stendur þess litla svefntunna. Innrými hennar er skipt í tvennt, ytra rýmið er með bekki til beggja hliða en innra rýmið er 140×200 cm rúm. Í tunnunni eru ljós, innstungur og rafmagnsblásari.
Samkvæmt gjaldskrá er greiddar 3.300 kr. fyrir hvern fullorðinn gest í svefnpokagistingu og 1.600 kr. fyrir táninga.
Sjá verðskrá
Auk þess þarf að greiða 1.300 kr. fyrir eininguna með rafmagni, þar af er innifalinn 600 kr. gistináttaskattur.