- Tjaldsvæðið er rekið undir firmaheitinu CJA [150769-5079] sem ber ábyrgð á afhendingu þjónustunnar sem keypt er. Öll verð eru birt með VSK.
- Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma, sýna við komu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu. Óheimilt er að framselja bókað stæði.
– Sá gestur sem greiðir fyrirfram á netinu gefst kostur á að afbóka sig allt að 48 tímum fyrir bókaða dagsetningu og fá greidda upphæð að frádregnu 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt.
– Ef dvöl er stytt fæst 50% endurgreiðsla fyrir þær nætur sem ekki eru nýttar. Ef dvöl styttist eftir kl. 15, dregst ein nótt frá heildar endurgreiðslu.
– Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði fer eftir stærð þess og er á bilinu 6-10 fullorðnir einstaklingar, 18 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur en hver unglingur 13-17 ára telur á við ½ fullorðinn einstakling). - Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir milli kl. 15 og 23 á svæðinu. Gestir sem koma eftir það mega eiga von á því að þeim verði synjað um að koma sér fyrir. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda á öðrum tímum. Hver klst. fyrir kl. 15 kostar 100 kr á mann og greiðist á staðnum.
- Gestir þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 13 á brottfarardegi. Ef aðstæður leyfa geta verðir gefið heimild til að seinka brottför. Hver klst. eftir kl. 13 kostar 100 kr. á mann og greiðist á staðnum.
- Hámarkshraði ökutækja inn á tjaldsvæðinu er 15 km/klst.
– Öll umferð ökutækja innan tjaldsvæðið er óheimil frá miðnætti og fram til klukkan sjö árdegis. - Gestum er skylt að ganga vel um náttúruna á tjaldsvæðinu og í nágrenni.
– Þess er vænst að allt rusl sem hægt er að endurvinna sé skolað, flokkað og skilað í söfnunarílát við þjónustuhúsnæði. Engu rusli má henda á víðavangi. - Óheimilt er að kveikja opinn eld.
– Gestum er skylt að gæta þess að engin hætta stafi af eldunartækjum þeirra, prímusum og grillum, né valdi þau skaða á gróðri. Eingöngu má nota einnota grill á malarplani. - Gestum ber að gæta þess að valda ekki ónæði með háreysti, umferð eða óþarfa hávaða á tjaldsvæðinu. Á Hjalla er auk tjaldsvæðisins rekið gistiheimili og þess er vænst að gestir virði ytri mörk tjaldsvæðisins og valdi ekki ónæði meðal gistihússgesta.
Kyrrð skal ríkja frá miðnætti til morguns. - Ólögráða einstaklingar geta eingöngu dvalið á tjaldstæðinu í fylgd með forráðamanni sem jafnframt ber ábyrgð á viðkomandi í því umhverfi sem er í næsta nágrenni við tjaldstæðið og þeim hættum sem þar kunna að leynast.
– Gestir sem ekki virða þessar almennu reglur tjaldsvæðisins kunna að verða látnir yfirgefa tjaldsvæðið tafarlaust geri þeir ekki umsvifalaust breytingu á umgengni sinni eftir ábendingar starfsfólks þar um.
– Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna.
– Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra