Tjaldsvæðið

Ert’ á leið í útilegu?

Tjaldsvæðið okkar hentar alveg sérlega vel inn í pöntunarkerfi þar sem það er allt hólfað niður í einkasvæði sem hver gestur leigir fyrir sig. Það er þó samt alls ekki þannig að nauðsynlegt sé að panta en þau sem hafa verið áður eiga mörg orðið sitt uppáhalds hólf. Þá getur komið sér vel að við erum í samstarfi við parka.

Þjónustuhúsnæðið.
Ánægður vetrartjaldgestur.

Örfá orð um þjónustuhúsið

Fremst á myndinni er kalt skýli við húsið en þar inni eru eldavélahellur og allir flokkunar- og rusladallarnir. Þann hluta ársins sem hitastig á Íslandi leyfir er rennandi vatn í krönum og því hægt að nota skjólið líka til að vaska upp. Í hinum enda hússins er hins vegar lítil setustofa þar sem líka er hægt að vaska upp, þar geta nokkrir sest inn í hlýuna og þar er þvottavél og þurrkari sem gestum býðst að kaupa sér aðfnot af. Á snyrtingu merktri konum má finna 3 WC og 2 sturtur. Á snyrtingu merktri körlum má finna 1 WC, 1 þvagskál og 1 sturtu. Á ómerktri snyrtingu sem fyrst og fremst er ætluð hreyfihömluðum og fjölskyldum má finna það sem helst líkist heimilisbaðherbergi. Þar er líka skiptiborð.
Hjá þjónustuhúsnæðinu eru borð og bekkir undir berum himni, þvottasnúrur, rólur, vatnsslanga til að fylla á vatn á húsbílum og stútur til að hreinsa seiru úr ferðaklósettum, þar er líka önnur slanga til að skola.

hólfaskipting

A B C D E F

Við tölum oft um það sem efra svæðið. A er upp á hæð, þaðan er fallegt útsýni til suðurs en þaðan er líka lengstur gangur í þjónustuhúsnæðið, um 300 metrar. Vegurinn fyrir neðan svæðið á myndinni er sá sem ekið er heim að Hjalla en aka þann fyrir ofan til baka og inn á þetta svæði við A, niðurfyrir og upp í síðan hvert svæði fyrir sig frá B til F.

G H I J K

Neðst á myndinni má sjá glitta í endan á þjónustuhúsnæðinu. Svæðin næst innkeyrslunni inn á það, G og H bjóða upp á rafmagnstengla. Eins og sést á myndinni eru efstu svæðin stærri en hin en það sem sést ekki er að þau eru með meiri halla. Ef rýnt er í myndina má sjá að frá svæðinu liggja 3 gönguleiðir að þjónustuhúsinu.

L M N

Malarbílastæðin notum við svo sem fyrst og fremst á veturnar en þar er líka hægt að leggja bílnum sínum að sumri til að eiga meira pláss á grassvæðinu sínu. Í boði eru rafmagnstenglar á stærra stæðinu við hlöðuna (rauða þakið) og svo er ekki hægt að panta stæði á netinu á minna bílastæðinu sem er við þjónustuhúsnæðið.