Takk fyrir að velja CJA gistingu

Hafið í huga

  • Herbergi fást afhent í fyrsta lagi klukkan fjögur síðdegis á innritunardegi.
  • Ef innrita á sig eftir klukkan átta að kveldi þarf að hringja og láta vita þann dag.
  • Á brottfarardegi skal yfirgefa húsið eigi síðar en klukkan ellefu fyrir hádegi.
  • Sá sem á bókaða gistingu en mætir ekki þarf að greiða fyrir hana.
  • Ef gisting er afpöntuð með minna en 3 sólarhringa fyrirvara þarf að greiða 1 nótt fullu verði.

Dvalið á Hjalla

  • Vinsamlega gangið ekki um húsið á útiskóm.
  • Húsið er reyklaus íverustaður.
  • Gestir eru beðnir að sýna hver öðrum og gestgjöfunum tillitssemi og virðingu.
  • Sérstök áhersla er lögð á góða næturró frá miðnætti til morguns.

Næring

  • Morgunmatur er frá átta til tíu nema um annað hafi verið samið.
  • Ekki er gert ráð fyrir að gestir taki með sér nesti fyrir daginn af morgunverðarborðinu en hægt er að kaupa nestispakka sérstaklega.
  • Gestir hafa ekki aðgang að eldhúsi og öll notkun á eigin eldunarbúnaði, s.s. gaseldarvélarhellu eða öðru slíku, er ekki heimil á herbergjum.
  • Hægt er að fá keyptan kvöldmat en panta þarf með nokkrum fyrirvara.

Náttúra

  • Eigendur CJA gistingar leitast við að takmarka vistspor sitt og biðja gesti sína að taka þátt í því, til dæmis með því að flokka til endurvinnslu.
  • Gestum er frjálst að nota garðinn kringum húsið sem og heita pottinn en hvoru tveggja er á eigin ábyrgð.

Virðing

  • Tilkynna ber skemmdir á eigum CJA gistingar og bæta tjón. Búast má við því að stórfellt og/eða ótilkynnt tjón verði kært til lögreglu.

Húsráðendur og gestgjafar CJA gistingar áskilja sér rétt til þess að vísa þeim gestum burt sem sýna þeim og þessum húsreglum óvirðingu.